Skilmálar

Voffaland ehf, Axarhöfða 16, 110 Reykjavík.

Voffaland ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis..

Afhending vöru

Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Voffaland ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Skilað og skipt

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneigninarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur (ef fyrirtækið er með lögheimili í Reykjavík) eða Héraðsdómi Reykjaness (ef fyrirtækið er með lögheimili í t.d. Garðabæ eða Kópavogi) Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.

Voffaland ehf
Kennitala: 580521-2580
Reikningsnúmer: 515-26-580521